20.12.2006
Stofujól
20.12.2006
Jólatónleikar
Mánudaginn 18. desember voru jólatónleikar kóranna okkar undir stjórn Önnu Maríu tónmenntakennara. Sungin voru mörg jólalög við góðar undirtektir. Eftir tónleikana var geisladiskur með söng kóranna til sölu. Diskurinn ber heitið "Jólalögin okkar" og var tekinn upp fyrir jólin. Ágóðinn af sölunni fer í kórasjóðinn.
6.12.2006
Gaman í sundi
6.12.2006
4. KÞ
Börnin í 4.KÞ eru dugleg að vinna og hafa gaman af að spjalla um námsefnið.
Þau hafa gert ýmis verkefni í samfélagsfræði.Nú eru þau að læra um störfin í gamla daga.
Hér eru þau að hlusta á kennarann og vinna verkefni.
Á veggjunum sjást nokkur af verkefnum þeirra.
K.Á.Þ. og
4. KÞ
29.11.2006
2.ÁÞ
24.11.2006
Íþróttahátíð í 1. - 4. bekk.
Þriðjudaginn 21. nóvember var haldin íþróttahátíð í 1. - 4. bekk. Árgangarnir blönduðust saman og fóru í hópum milli stöðva. Það var mikið líf og fjör þennan frábæra dag og í lokin bauð foreldrafélagið upp á galdrakarl og frostpinna. Kunnum við þeim kærar þakkir fyrir.
Margrét S. Björnsdóttir
23.11.2006
Líf og fjör í íþróttum Árbæjarskóla
23.11.2006
Heimilisfræði
20.11.2006
Dagur íslenskrar tungu
Dagur íslenskrar tungu var haldinn hátíðlegur hér í Árbæjarskóla
samkvæmt venju 16. nóvember. Mikið var sungið og lesið upp úr
verkum Jónasar. Nemdur úr 6. og 7. bekk fluttu sérstaka dagskrá þar sem
æviágrip skáldsins var flutt og nemendur lásu upphátt söguna um
Stúlkuna í turninum. Eldri kór og Yngri kór Árbæjarskóla flutti
Lög á samkomunum undir stjórn Önnu Maríu tónmenntakennara.
15.11.2006
Heimilisfræði
Valhóparnir í heimilisfræði eru farnir að búa sig undir komandi hátíðisdaga og eru nú búnir að sanna í sig í rjómatertugerð. Í ljós kom að ýmsir voru ansi liðtækir við tertuskreytingar og voru býsna ánægðir með afrakstur erfiðis síns. Það er ýmislegt fleira á döfinni á næstu vikum eins og t.d. smurbrauð- og laufabrauðsgerð. Anna Margrét og Ragnheiður
13.11.2006
7.GB
9.11.2006
Dagur íslenskrar tungu
Um þessar mundir er 6.H.G. að undirbúa sig fyrir ,,Dag íslenskrar tungu". Í dag erum við að búa til stórt veggspjald, sem fer fram á gang í næstu viku.
Nemendurnir eru að skrifa upp ljóð eftir Jónas Hallgrímsson, skreyta, teikna myndir og fleira.
27.10.2006
Bangsadagurinn
17.10.2006
Heimasíða Árbæjarskóla
Þriðjudaginn 17. október var tekin í notkun ný heimasíða Árbæjarskóla. Á heimasíðunni má nálgast upplýsingar um skólastarfið auk frétta af helstu viðburðum hverju sinni. Notendur eru vinsamlegast beðnir um að kynna sér vel efni síðunnar og sakni þeir einhvers er þess óskað að þeir komi athugasemdum sínum á framfæri á tölvupóstfang skólans arbaer@arbaejarskoli.is . Einnig má velja flipann hafa samband sem er til vinstri á síðunni. Ritstjóri síðunnar er Sigrún Lilja Guðbjörnsdóttir.
Með kveðju
Skólastjórn
17.10.2006
4. bekkur
Textílmennt
Þessir duglegu krakkar í 4.bekk eru búnir að vera í textílmennt
síðustu sjö vikurnar og standa sig vel. Þau voru að æfa sig í vélsaumi og saumuðu þessa fínu bangsa og prjónuðu svo föt á hann. Einnig þæfðu þau og saumuðu litla krosssaumsmynd sem síðan verður smíðaður rammi utanum í smíði.
Birna textílkennari.
13.10.2006
1.BÞ
Nemendurnir í 1. BÞ hafa haft mikið að gera allt frá upphafi skóla í haust. Nú er þetta unga fólk á fullu í lestrarnáminu og allir eru að læra að skrifa, bæði bókstafi og tölustafi. Við höfum verið að fjalla um umhverfið og þessa dagana er sérstaklega verið að fræðast um birki. Börnin hafa verið að fylgjast með breytingum á birkinu eftir því sem líður á haustið. Þau skoðuðu laufblöðin og bjuggu til sitt eigið birkitré til að hafa inni í skólanum. Nú í vikunni fóru þau út og þræddu birkilauf upp á vírþráð. Síðan gerum við fína kransa úr þessu og bindum á þá fallega skrautborða.
11.10.2006
8.PH
Þann 12/9 hélt 8.PH Bekkjarkvöld !
Pöntuð var pizza frá Dominos og leigð mynd
Date movie
Allir skemmtu sér rosalega vel og hlógu sig máttlausir af myndinni.
Það voru tveir til þrír saman með pizzu og allir fóru saddir heim =)
Svo má ekki gleyma að Védís var með myndavélina á fullu og tók flottar
myndir af bekknum :)
Við vonum bara að þetta hafi verið skemmtilegt kvöld og endurtökum þetta
vonandi sem fyrst =)
Með kveðju
>Anton , Kolbrún , Rut og Bjöggi
9.10.2006
Ný frétt
Prufa
5.10.2006
5.IH
Á degi stærðfræðinnar þann 27. sept. var nemendum 5. bekkja skipt í hópa, þar sem hver hópur glímdi við ákveðin verkefni á fimm stöðvum. Hóparnir skiptu um stöðvar eftir tiltekinn tíma, þannig að allir höfðu viðkomu á öllum stöðvunum.
Nemendur voru afar áhugasamir og höfðu gaman af. IH.
2.10.2006
2. bekkur í smíði
"Í öðrum bekk eru duglegir krakkar sem voru að ljúka við að
smíða
fugla."
28.9.2006
4.GT
Við í 4.GT skelltum okkur niður Elliðaárdal í góða veðrinu. Markmiðið var að finna eitthvað sem nýta mætti inn í stofunni okkar. Af nógu var að
taka og hugmyndirnar margar.
18.9.2006
2.ÞS
Frétt frá 2. ÞS
Þessar fyrstu vikur skólaársins hafa farið vel af stað. Byrjað var á stafaupprifjun og upprifjun í stærðfræði. Eitt af fyrstu verkefnum nemenda var að teikna sjállfsmynd og setja upp afmælisdagatal fyrir bekkinn. Í endaðan ágúst fór bekkurinn í gönguferð í tengslum við kristinfræðiverkefni. Kakkarnir unnu verkefni í tengslum við ferðina sem var að teikna það sem þau sáu fallegt í umhverfinu. Í þessari viku stendur til að fara aftur út í vettvangsferð og vinna verkefni í kjölfarið, að þessu sinni í tilefni Elliðaársdalsdagsins. En því var frestað vegna veðurs í síðustu viku.
14.9.2006
Fylkir Íslandsmeistarar B-liða í 4. flokki karla 2006
Síðastliðinn mánudag tryggði B-lið Fylkis í 4. flokki karla sér Íslandsmeistaratitil í knattspyrnu
12.9.2006
1.SS
Það er stór viðburður í lífi hvers barns að hefja skólagöngu. Þessi föngulegi hópur byrjaði hér í Árbæjarskóla í haust og heitir bekkurinn 1.SS Bjóðum við þau velkomin. Sigrún Snævarr
4.9.2006
Alþjóðlega Vináttuhlaupið á Íslandi
Þann 31. ágúst komu góðir gestir til nemenda 6. bekkjar.
Þetta voru hlauparar alþjóðlega Vináttuhlaupsins á Íslandi.














