Beint á leiðarkerfi vefsins
Forsíða


Hlutverk umsjónarkennara

Í skólastarfinu er umsjónarkennarinn lykilpersóna.  Hann er sá aðili innan skólans sem veitir nemendum sínum þann stuðning og aðhald sem þurfa þykir.  Hlutverk umsjónarkennarans er meðal annars að hlutast til um andlega og líkamlega velferð nemenda sinna í samvinnu við forráðamenn eftir þörfum.  Umsjónarkennarar hafa ákveðna viðtalstíma en sinna samskiptum að öðru leiti í samvinnu við forráðamenn nemenda. 
Einu sinni í viku er sérstakur lífsleiknitími á stundaskrám nemenda en þar mæta nemendur hjá umsjónarkennara sínum.  Þar gefst gott tækifæri til að efla bekkjarandann, styrkja samband umsjónarkennara við nemendur sína og fjalla almennt um þau mál sem snúa að vinnu, umgengnisvenjum, punktastöðu nemenda og þeim málum sem upp kunna að koma í einstökum bekkjardeildum.  Þessar kennslustundir eru einnig ætlaðar til ýmissa annarra þátta í starfi skólans. 
Athugið að punktastöðu nemenda, einkunnir eða fjarvistarskrá má ekki hengja upp í kennslustofum eða birta opinberlega sbr. lög.

Komi upp vandamál hjá einstökum kennurum þá eiga mál að fara í eftirfarandi farveg:
· Fyrst ræðir kennarinn einslega við viðkomandi nemanda.
· Beri það ekki árangur ræðir umsjónarkennari við forráðamann nemanda og nemandann sjálfan.
· Komi enn upp vandamál vísar umsjónarkennari málinu til aðstoðarskólastjóra sem ræðir við nemanda og forráðamann hans.
· Verði enn um vandamál að ræða tekur skólastjóri við málinu og ræðir við nemanda og forráðamann hans.
· Ef enn ekki tekst að leiða mál til farsællar niðurstöðu er því vísað til barnaverndaryfirvalda og Fræðslumiðstöðvar Reykjavíkur til frekari úrlausna.

Tekið skal skýrt fram að þó þetta sé hin almenna vinnuregla sem fara á eftir er sjálfsagt að viðkomandi kennari ræði málið við skólastjórn og leiti ráða og aðstoðar.  Skólastjóri og aðstoðarskólastjórar eru bakhjarlar kennara og eru alltaf reiðubúnir að aðstoða hvort sem er faglega eða þega vandamál koma upp.
Skólastjóri leggur mikla áherslu á gott og traust samband við kennara.  Vandi kennara er líka vandi skólastjóra. 

Til áréttingar:

· Umsjónarkennari er tengiliður skólans við forráðamenn nemenda.  Það er hans hlutverk að hafa gott samband milli heimilis og skóla.
· Umsjónarkennari skal einnig fylgjast vel með nemendum sínum og miðla til annarra kennara upplýsingum um nemendur eftir því sem þurfa þykir.
· Umsjónarkennari skal fylgjast vel með námsframvindu nemenda sinna.

 

Tilkynningar


Viðburðadagatal

 «Maí 2012» 
sunmánþrimiðfimföslau
  12345
6789101112
13141516171819
20212223242526
2728293031  

Auglýsingar


Spakmæli

Röskun á skólastarfi

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Mynd


Einkunnarorð