Beint á leiðarkerfi vefsins
Forsíða

Um öryggi á Netinu

Á vefsíðunum hér fyrir neðan eru ráð og upplýsingar fyrir foreldra og kennara um öryggi á Netinu, auk möguleika til samskipta um ýmis vandamál sem tengjast netnotkun.  Þessum leiðbeiningum er ætlað að auka vitund fullorðinna um hvernig hægt er að nota Netið á öruggan hátt og um leið hvetja til ábyrgrar og öruggrar netnotkunar barna og unglinga.

Kynnið ykkur netsíðurnar.
www.besafeonline.org   ( be safe on line )  og einnig www.saft.is

“Við skulum öll vera vel upplýst”

Stjórnin

 

Þá
Mér fannst svo gaman
að kvelja hann
og enginn þorði að klaga mig Nú
Ég sá hann í dag
hann er frægur.
Ég öfunda hann
því hvað er ég?
Ekkert !

Erla Ásgeirsdóttir
Varmahlíðarskóla, Skagafirði
Á mjólkurfernu

“Ég vildi óska að fólk vaknaði til umhugsunar um börnin sín.  Hvað þau eru að gera og um allar þær hættur sem eru í þjóðfélaginu.  Sá heimur sem flestir unglingar upplifa í dag er því miður ekki í neinum tengslum við raunveruleikann, enda lifa þeir í umhverfi sem er afar erfitt.  Það er svo margt neikvætt í gangi.  Í sjónvarpinu eru þættir eftir þætti sem eru engan veginn byggðir á raunveruleikanum, tölvuleikir sömuleiðis, og börn og unglingar fá ranghugmyndir um lífið ef við foreldrarnir erum ekki á varðbergi og leiðbeinum þeim.  Mig langar svo að fá að koma með smá boðskap að lokum þar sem ég vil biðja foreldra að vera meira vakandi yfir börnunum sínum.  fylgjast með þeim, hvað þau eru að gera, hvernig þeim líður og leiðbeina þeim þannig að þau geti borið ábyrgð á eigin lífi.  Við þurfum að búa þau þannig undir lífið að þau séu tilbúin að koma út í þjóðfélagið sem sjálfstæðir persónuleikar og geti sagt já eða nei á sínum forsendum.  Það getur vel verið að sumum finnist þetta óraunhæft en ég tel svo alls ekki vera.  Við þurfum að gera róttækar breytingar og fyrst og fremst þurfa foreldrar að hætt að fría sig frá ábyrgð og kasta allri sök yfir á skólana lendi börn þeirra á villgötum.  Lífið er bara ekki þannig.”

Linda Björk Guðrúnardóttir
Vikan 11. mars 2003.

Lífið

Ég veit ekki hvers vegna
og ég veit ekki hvernig það er
og ég skil ekki hvers vegna
og til hvers það er.

En seinna mun ég skilja
til hvers og af hverju það er
og líka mun ég vita
hvernig það er.

Ásdís Geirsdóttir
Hjallaskóla, Kópavogi
Á mjólkurfernu

Til umhugsunar fyrir foreldra

Takið virkan þátt í lífi barnsins.
Sýnið viðfangsefnum barnsins áhuga.
Hlustið á barnið á jákvæðan og uppbyggilegan hátt.
Eflið sjálfsímynd barnsins.  Hrósið fyrir viðleitni jafnt sem árangur.
Hjálpið barninu að takast á við hópþrýsting.
Verið barninu góð fyrirmynd.
Gefið skýr skilaboð.
Setjið barninu skýrar reglur.
Hvetjið barnið til íþrótta- og tómstundaiðkunar.
Verið í góðu sambandi við foreldra bekkjarsystkina og vina.
Ræðið hreinskilnislega við barnið.
Leitið aðstoðar ef þið teljið barnið eiga í vanda.

www.vimuvarnir.is

Tilkynningar


Viðburðadagatal

 «Maí 2012» 
sunmánþrimiðfimföslau
  12345
6789101112
13141516171819
20212223242526
2728293031  

Auglýsingar


Spakmæli

Röskun á skólastarfi

Slóðin þín:

Foreldrafélag » Fróðleikur

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Mynd


Einkunnarorð