Beint á leiðarkerfi vefsins
Forsíða

Fyrirlestur og umræða.

Þriðjudaginn 17. mars, 2009 kl. 18:00 – 20:00, í hátíðarsal Árbæjarskóla.   

Áslaug hjúkrunarfræðingur og Linda Pálsdóttir námsráðgjafi, verða með fræðslu fyrir stúlkur í 5. og 6. bekk og kvenkyns fylgdarmanneskju þeirra.

Boðið verður upp á súpu og brauð í hléi.

Vonum að sem flestir sjái sér fært að mæta til að eiga skemmtilega og fróðlega kvöldstund saman.

Stjórn Foreldrafélags Árbæjarskóla.

Mæðgnakvöld í Árbæjarskóla fyrir mæður og dætur í 5. og 6. bekk, í boði Foreldrafélags Árbæjarskóla 

Umræðuefni: 

Hvernig við sem mæður getur lagt góðan grunn að samskiptum við dætur okkar á þeim tímapunkti þar sem miklar andlegar, líkamlegar og félagslegar breytingar eru framundan. 

Hvernig við ræðum saman um þroskabreytingar, vináttu, samskipti og stuðning. 

Hvernig við getum undirbúið og stutt sem best við bakið á dætrum okkar og fl. 

Umsjón hafa:  Guðrún Ólöf Jónsdóttir og Stefanía Arnardóttir hjúkrunarfræðingar 

Hvenær:

Hvar: Í sal Árbæjarskóla 

Léttar veitingar í boði Foreldrafélagsins í hléi 

Nánar upplýsingar veitir Sandra í síma 894-5204 

Ég vil gjarna að þið staðfestið komu ykkar.  Sendið staðfestinguna ekki á sendenda þar sem netpósturinn er sendur frá skólanum, svarið á netfangið foreldrafelagid@arbaejarskoli.is

Meðmæli móður: 

Við mæðgur mættum á mæðgnakvöldið galvaskar og tókum eina bekkjasystur með en mamma hennar komst ekki.  Þarna vorum við átján stúlkur á misjöfnum aldri mættar til að fræðast saman um væntanlegar breytingar sem allar stúlkur ganga í gegn um.  Ástæðuna fyrir fámenni á þessu ágæta fræðsluefni veit ég ekki því ekki vantaði áhugan hjá þessum ungu stúlkum.

Fyrirlestrarnir frá hjúkrunarfræðingunum voru mjög góðir og náðu þær báðar mjög vel athygli stúlknanna.  Í hléi var boðið upp á súpu.

Okkur mæðgum bar saman um að þetta hefði verið mjög fróðlegt og gaman, en eitthvað hafi farið úrskeiðis í boðun á þetta annars frábæra kvöld.  Foreldrar munum að við verðum að taka markvissan þátt í uppfræðslu barna okkar og þetta er bara einn liður í því.

Bestu þakkir fyrir okkur. 

*************************************************************************** 

Stjórn Foreldrafélags Árbæjarskóla vonast til að mæting verði góð í ár og þær sem misstu af mæðgnafræðslunni í fyrra (6. bekkur) er boðið að koma með 5 bekk í ár.

Tilkynningar


Viðburðadagatal

 «Maí 2012» 
sunmánþrimiðfimföslau
  12345
6789101112
13141516171819
20212223242526
2728293031  

Auglýsingar


Spakmæli

Röskun á skólastarfi

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Mynd


Einkunnarorð