Beint á leiðarkerfi vefsins
Forsíða

Annað hvert föstudagskvöld er það í höndum foreldra og annarra íbúa hverfisins að rölta og kanna ástandið í hverfinu, auk þess sem foreldrar eru kallaðir til við sértök tækifæri eins og við lok samræmdu prófa eða þegar eitthvað sérstakt er að gerast í hverfinu.   Foreldrar eru boðaðir með tölvupósti og endilega verið einnig meðvituð um daginn sem bekkurinn ykkar röltir og takið daginn frá, ef tölvupósturinn skildi ekki berast.

Foreldrar nemenda úr tveimur bekkjum mæta í röltið í einu og ekki færri en 5 manns rölta saman.  Áhugaverðar samræður verða oft og foreldrar kynnast betur. Það getur verið erfitt að koma sér upp úr sófanum, frá sjónvarpinu á köldu föstudagskvöldi en þetta er hressandi göngutúr og við gerum okkur öllum greiða með að mæta.

Rölthópurinn hittist í Árseli kl. 23:00 og spjallar saman áður en haldið er af stað.  Rætt er um hvert á að fara, hvað á að gera og hvað er um að vera í hverfinu.  Að rölti loknu er aftur safnast saman í Árseli og bornar saman bækur.

Með þátttöku í röltinu taka foreldrar þátt í að gera umhverfi barna sinna betra og öruggara.  Þeir taka þátt í því mikilvæga forvarnarstarfi sem röltið er um leið og þeir kynnast hverfinu og íbúum þess.

Upplýsingar um foreldraröltið er hægt að fá í síma foreldrafélagsins 659 1120.

Tilkynningar


Viðburðadagatal

 «Maí 2012» 
sunmánþrimiðfimföslau
  12345
6789101112
13141516171819
20212223242526
2728293031  

Auglýsingar


Spakmæli

Röskun á skólastarfi

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Mynd


Einkunnarorð