Beint á leiðarkerfi vefsins
Forsíða

Skólaárið 2008-2009

Kynning á breyttu fyrirkomulagi foreldrastarfs innan bekkjadeilda

Ákveðið var á aðalfundi foreldrafélagsins þann 14. maí síðastliðinn að leggja niður þrískiptingu bekkjaráðs eins og verið hefur. Ástæða þess var léleg þátttaka foreldra í félagsstarfi barnanna og því ákveðið að reyna að fara aðrar leiðir í þeim efnum.

Breytt fyrirkomulag 1.- 4. bekkja verður á eftirfarandi hátt:

Kosnir verða tveir foreldrar barna úr hverjum bekk sem bera þá ábyrgð að virkja hina foreldra til þátttöku í félagsstarfi barnanna. Æskilegt er að staðið sé fyrir a.m.k. einni uppákomu á hvorri önn. Ekki er nauðsynlegt að fara eitthvað út fyrir skólann. Skemmtikvöld í skólanum eru t.d. alltaf vinsæl þar sem börnin sjá um að skemmta sér og foreldrum með ýmsum hætti.

Breytt fyrirkomulag 5. – 10. bekkja verður á eftirfarandi hátt:

Hver árgangur verður með eitt skemmtikvöld á sal eftir áramót. Ef vel tekst til nú í ár þá er ætlunin að hafa þetta 2x á ári eða bæði fyrir og eftir áramót. Þetta getur t.d. verið spilakvöld, tónlist, leikrit, dans, söngur, hljóðfæraleikur þar sem þau skemmta sér ásamt  foreldrum /forráðamönnum. Þetta verður að gera í samráði við ábyrga foreldra sem taka að sér að halda utan um skemmtikvöldið.

Stjórn félagsins ákveður dagsetningu og tekur sal skólans frá fyrir hvern árgang fyrir sig. Síðan verða að minnsta kosti tveir forráðamenn, sem tilbúnir eru að halda utan um og skipuleggja skemmtikvöldið, fyrir hverja bekkjadeild (þ.e. ef 3 bekkir þá 6 fulltrúar) að gefa sig fram með minnst 7 daga fyrirvara.

Athugið ef að ekki fást nægilega margir foreldrar/forráðamenn innan þess tíma fellur skemmtikvöldið sjálfkrafa niður.

 

Tilkynningar


Viðburðadagatal

 «Maí 2012» 
sunmánþrimiðfimföslau
  12345
6789101112
13141516171819
20212223242526
2728293031  

Auglýsingar


Spakmæli

Röskun á skólastarfi

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Mynd


Einkunnarorð