Beint á leiðarkerfi vefsins
Forsíða

10. bekkur - Valblað

10.bekkur - Valblað

Skólaárið 2012 - 2013

Skólaárið 2012 - 2013 verður skipulagi náms í 10. bekk Árbæjarskóla þannig háttað að allir nemendur munu stunda nám í kjarnagreinum og íþróttum. Auk þess velja nemendur 4 - 8 stundir á námsbrautum og til viðbótar frjálst val þannig að kennslustundafjöldi verður 37 stundir á viku.  Í valinu verður árgöngum unglingadeildar blandað saman í einstökum námsgreinum. 

Mikilvægt er að nemendur vandi val sitt og séu meðvitaðir um inntak þeirra námsgreina sem þeir velja.  Því er nauðsynlegt að nemendur afli sér sem mestra upplýsinga um þær valgreinar sem í boði eru.

Að gefnu tilefni skal nemendum bent á að hver og einn velur sér þá leið í námi sem hann telur henta sér best en velur ekki með það í huga að gera eins og besti vinurinn eða vinkonan. Val nemenda hefur áhrif á skipulag komandi skólaárs og því verða breytingar á vali ekki mögulegar eftir að skóli hefst í haust.



Námsbrautir í 9. og 10. bekk

Nemendur velja á milli mismunandi námsbrauta.

Grunnbraut Auk kjarnagreina eru 2 kennslustundir í samfélagsfræði og 2 kennslustundir í náttúrufræði á viku í 9. og 10. bekk. Þessi braut hentar vel nemendum sem stefna á aðrar brautir en félags- eða náttúrufræðibrautir í framhaldsskóla.

Félagsfræðibraut Auk kjarnagreina eru 4 kennslustundir í samfélagsfræði og 2 kennslustundir í náttúrufræði á viku í 9. og 10. bekk. Þessi braut hentar vel nemendum sem stefna á félagsfræðibraut í framhaldsskóla.

Náttúrufræðibraut Auk kjarnagreina eru 4 kennslustundir í náttúrufræði og 2 kennslustundir í samfélagsfræði á viku í 9. og 10. bekk. Þessi braut hentar vel nemendum sem stefna á náttúrufræðibraut í framhaldsskóla.

Félags- og náttúrufræðibraut Auk kjarnagreina eru 4 kennslustundir í samfélagsfræði og 4 kennslustundir í náttúrufræði á viku í 9. og 10. bekk. Þessi braut hentar vel nemendum sem stefna annað hvort á félags- eða náttúrufræðibraut í framhaldsskóla.
Grunnbraut- Náttúrufræði 2 stundir - Samfélagsfræði 2 stundir
Félagsfræðibraut - Náttúrufræði 2 stundir - Samfélagsfræði 4 stundir
Náttúrufræðibraut - Náttúrufræði 4 stundir - Samfélagsfræði 2 stundir
Félags- og náttúrufræðibraut - Náttúrufræði 4 stundir - Samfélagsfræði 4 stundir
Veljið 8 námsgreinar og setjið töluna 1 við þá námsgrein sem þið hafið mestan áhuga á, töluna 2 við þá grein sem þið hafið næst mestan áhuga á o.s.frv.

Framhaldsskólaáfangar:


Ég sæki um að fá nám utan skóla og / eða þátttöku í skipulögðu íþróttastarfi metið sem valgrein

2 stundir á viku
4 stundir á viku
Nemendur þurfa að skila til skrifstofu skólans staðfestingu (sjá eyðublað á heimasíðu skólans), frá viðkomandi skóla / íþróttafélagi í síðasta lagi fyrir 10.september 2012.

Athugið sérstaklega að val nemanda á valblaði er bindandi fyrir komandi skólaár og verður ekki breytt eftir að skóli hefst haustið 2012 og því er afar mikilvægt að vanda valið.
Ruslpóstvörn, Vinsamlega sláðu inn tölurnar á myndinni hér að ofan

Tilkynningar


Viðburðadagatal

 «Maí 2012» 
sunmánþrimiðfimföslau
  12345
6789101112
13141516171819
20212223242526
2728293031  

Auglýsingar


Spakmæli

Röskun á skólastarfi

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Mynd


Einkunnarorð